Greinar um þetta efni

Hvað er IREI?

IREI (Icelandic Research e-Infrastructure) er eining innan Upplýsingatæknisviðs HÍ (UTs) sem rekur rafrænan innviðakjarna fyrir  rannsóknir á Íslandi. Kjarninn er byggður á fjórum stoðum: ráðgjöf, meðferð og varðveislu gagna, miðlun gagna og reikniafli.

Tvær megin upplýsingatækniþjónustur eru í boði:
  • HPC reikniklasar — reikniafl fyrir þung reikniverkefni (klasarnir Elja, Stefnir og Mímir).
  • Nextcloud gagnaský — örugg gagnageymsla og gagnamiðlun fyrir rannsóknarverkefni.
Allar þjónustur IREI keyra á eigin vélbúnaði UTs og gögnin eru geymd í gagnaverum UTs á Íslandi, í Sögu og hjá Veðurstofunni. Gögn fara því ekki úr landi.
 
Þjónustur undir hatti IREI eru í boði fyrir íslenska háskóla og ríkisreknar rannsóknarstofnanir.
Rannsakendur á sjálfstæðum rannsóknarstofnunum geta fengið aðgang ef rannsóknarverkefnið er styrkt af hinu opinbera.
 
Nánari upplýsingar má finna hér: https://www.irei.is
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg