Námsmat og próf
Námsmat
Fjölbreytt mat á námi nemenda getur birst í blöndu af verkefnaskilum, hópverkefnum, jafningjamati og prófum. Gagnlegar upplýsingar um samsetningu námsmats má nálgast á síðu Setbergs.
Á síðunni má einnig finna hagnýtar upplýsingar um prófatímabil, fyrirkomulag fjarprófa, próftöflur og margt fleira. Einnig má finna hagnýtar upplýsingar um próf á síðu Setbergs um próf.
Tímasetningar og framkvæmd sjúkra- og endurtökuprófa geta þó í einstaka tilfellum verið misjöfn milli deilda og sviða og er hægt að leita til deildarskrifstofu með fyrirspurnir. Í kennslualmanaki er hægt að sjá nákvæmar dagsetningar. Nemendur greiða 6000kr gjald fyrir hvert endurtökupróf.
Afar mikilvægt er að tilkynna veikindi til deildarskrifstofu ef þau hafa áhrif á skil lokaeinkunna til nemenda.
Nemandi á rétt til að fá útskýringar kennara á mati skriflegrar úrlausnar sinnar ef hann óskar eftir því innan 15 daga frá birtingu einkunnar. Kennurum er heimilt að halda prófsýningu fyrir alla nemendur námskeiðs þar sem skýrt er út mat skriflegra úrlausna. Leita skal til viðkomandi deildar vegna prófsýningar.
Teljir þú að brotið sé á rétti þínum varðandi kennslu, próf, námsmat, einkunnagjöf, mat á námsframvindu eða annað sem snýr að kennslu og prófum skaltu senda skriflegt erindi til deildarforseta.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Prófaskrifstofa - 3. hæð í Setbergi.
Sími: 525-5278
Almennar fyrirspurnir um próf: profstjori@hi.is
Aðstoð vegna Inspera: inspera@hi.is
Upplýsingar um fjarpróf: fjarprof@hi.is
Umsóknir um fjarpróf: Umsókn um fjarpróf hjá Háskóla Íslands