Styrkir fyrir nemendur

Þessi síða inniheldur upplýsingar  styrki sem nemendum standa til boða úr sjóðum sem starfræktir eru við Háskólann. Inni á vefsíðu Stúdentaráðs Háskóla Íslands má finna frekari upplýsingar um þá.

Einnig veita sum stéttarfélög styrki til háskólanema.

Nýsköpunarsjóður námsmanna útvegar áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Styrkjum til þess að ráða nemendur til sumarstarfa er úthlutað til kennara á háskólastigi, fyrirtækja, rannsóknastofnana eða einstaklinga, sem teljast hafa sérþekkingu á ákveðnu sviði. Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, jafnt fyrir atvinnulíf og fræðasvið.

Afreks- og hvatningarsjóður nemenda Háskóla Íslands styrkir afburðanemendur til náms við skólann ár hvert. Styrkir eru veittir til framhaldsskólanema sem ná afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Við úthlutun er einnig leitast við að styrkja nemendur sem sýnt  hafa sérstakar framfarir í námi sínu eða náð góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Erasmus+ er menntaáætlun Evrópusambandsins og hefur Háskóli Íslands verið þar virkur þátttakandi um árabil. Nemendum sem fara í skiptinám gefst kostur á að öðlast alþjóðlega reynslu í námi sínu og skapa sér sérstöðu á vinnumarkaði.

Ný áætlun stuðlar að jöfnum tækifærum til náms erlendis með sérstökum viðbótarstyrkjum fyrir nemendur með sérþarfir. 

Nemendur sem greiða í stéttafélög geta kannað rétt sinn til námsstyrks hjá sínu stéttarfélagi. Mörg stéttarfélög veita styrk vegna greiðslu skrásetningargjaldsins. Þau sem greiða í gegnum netið, geta notað pdf kvittunina sem kemur sjálfvirkt þegar greitt er. Einnig veita sum stéttarfélög styrki vegna lokinna ECTS eininga.