Framfærsla

Nemendur hafa ýmsa kosti þegar kemur að framfærslu. Það er t.d. hægt að sækja um námslán og styrk hjá Menntasjóði námsmanna sem á að tryggja jöfn tækifæri til náms óháð efnahag. Nemendur sem eiga von á barni eiga rétt á fæðingarstyrk úr Fæðingarorlofssjóði og úrræði varðandi framfærslu geta líka verið í boði fyrir nemendur í hlutanámi, nemendur með fatlanir og/eða sértæka námsörðugleika eða nemendur í alvarlegum fjárhagsvanda.

Nemendur geta sótt um framfærslulán meðan á námi stendur hjá Menntasjóði námsmanna (áður LÍN). Námsmenn með börn á framfæri geta einnig átt rétt á styrk að uppfylltum skilyrðum. Skilyrði fyrir lán og styrki er hægt að  finna í lánareglum MSNM.

Einnig er hægt að leita til Hagsmuna- og lánasjóðsfulltrúa stúdenta á skrifstofu Stúdentaráðs með aðstoð varðandi námslán og samskipti við Menntasjóðinn. 

Námsmenn sem eiga von á barni eiga rétt á fæðingarstyrk úr Fæðingarorlofssjóði. Inni á vef island.is má finna ítarlegar upplýsingar um réttindi nemenda með börn

Réttinda-Ronja er upplýsingavefur fyrir nemendur með fatlanir/og eða sértæka námsörðugleika. Þar er t.d. hægt að nálgast upplýsingar um örorkubætur og styrki vegna námsörðugleika. Þar eru einnig ýmsar upplýsingar um réttindi í námi og úrræði sem standa þessum hópi háskólanema til boða.

Nemendur sem eru ekki í fullu námi geta sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun. Þeir mega þó ekki vera skráðir í meira en 12 ECTS einingar.

Allir nemendur í leiguhúsnæði geta kannað hvaða rétt þeir eiga á húsaleigubótum í reiknivél húsnæðisbóta á vefsíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).

Reykjavíkurborg veitir fjárhagsaðstoð til fólks sem af einhverjum ástæðum getur ekki séð fyrir sér og þurfa á aðstoð að halda. Nemendur annarra sveitarfélaga eru hvattir til að athuga hjá sínu sveitarfélagi hvort þau veiti slíka fjárhagsaðstoð.

Þeir nemendur sem eru í alvarlegum fjárhagsvanda geta athugað með úrræði hjá Umboðsmanni skuldara.

 

Háskóli Íslands býður upp á alhliða atvinnumiðlun fyrir stúdenta sem kallast Tengslatorg. Nemendur sem hafa áhuga á starfsþjálfun, hlutastarfi, sumar- eða framtíðarstarfi geta kannað framboðið á Tengslatorgi.