Greinar um þetta efni

HVS Tímalína Doktorsnáms

Tímalína doktorsnáms

Doktorsnám er skipulagt í sex mánaða tímabilum sem miðast við innritunardag þinn. Þar sem hægt er að hefja doktorsnám allt árið fylgja tímabilin ekki endilega hefðbundnum vor- og haustönnum.

Nákvæmar dagsetningar einstakra verkefna geta verið mismunandi. Þú ákveður fundartíma í samráði við doktorsnefndina en skilar gögnum innan tilskilinna tímamarka.

mynd af ferli -sýnir hvenær doktorsnefndarfundir, skil á framvinduskýrslum og miðbiksmat eru haldin eftir önnum, ef sótt er um aukaannir og hvað fer fram á lokaönninni.

Hversu langt er doktorsnámið?

Doktorsrannsókn er að jafnaði 180 einingar og samsvarar þriggja ára fullu námi. Námskeið geta verið 0–30 einingar til viðbótar.

Ef verkefnið reynist umfangsmeira en áætlað var getur þú sótt um að breyta því úr 180 einingum í 240 einingar.

Hámarksnámstími er sex ár miðað við fullt nám. Ef þú sérð ekki fram á að lj geta lokið náminu innan fjögurra ára þarftu að sækja um framlengingu:

  • fyrst um eitt ár, þannig að námstíminn verði fimm ár
  • síðan um annað ár ef þörf er á

Hlutanám

Þú getur sótt um að stunda doktorsnám í hlutastarfi. Tímamörk námsins eru þá lengd um helming. Ef þú ert í hlutanámi allan námstímann er hámarksnámstíminn því níu ár.

Hvað þarf að gera á námstímanum?

Rannsóknaráætlun – innan sex mánaða

Þú skilar rannsóknaráætlun eigi síðar en sex mánuðum eftir innritun. Hún er aðalumfjöllunarefni fyrsta fundar doktorsnefndar, nema ítarleg rannsóknaráætlun hafi fylgt umsókn þinni um námið.

Framvinduskýrsla – tvisvar á ári

Þú skilar framvinduskýrslu tvisvar á ári:

  • 1. júní
  • 1. desember

Þú og umsjónarkennari þinn vinnið skýrsluna í Doktorsnámunni.

Fundir doktorsnefndar – tvisvar á ári

Doktorsnefndin fundar að jafnaði tvisvar á ári. Annar hver fundur skal vera ítarlegur.

Ekki þarf að halda sérstakan doktorsnefndarfund á því tímabili sem eins árs mat eða miðbiksmat fer fram.

Eins árs mat – innan 12 mánaða

Eins árs mat fer fram áður en 12 mánuðir eru liðnir frá innritun. Þar metur doktorsnefndin hvort forsendur séu fyrir áframhaldandi doktorsnámi.

Miðbiksmat – að jafnaði eftir tvö ár

Miðbiksmat fer að jafnaði fram þegar um tvö ár eru liðin frá innritun. Doktorsnefndin annast matið og það kemur í stað hefðbundins doktorsnefndarfundar á viðkomandi tímabili.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg