Ugla

Image
Ugla einkennismerki innrivefs HÍ

Ugla er mikilvægur upplýsingavettvangur og öflugt verkfæri nemenda, starfsfólks og kennara Háskóla Íslands. Uglan er safn af kerfum og tólum sem notendur Háskólans nýta sér við nám, kennslu og stjórnsýslu.

Til þess að skrá sig inn á Uglu þá þarf viðkomandi að hafa fengið notandanafn  (notandanafn@hi.is).

Ugla er innra net opinberu háskólanna. Ugla er mikilvægur upplýsingavettvangur og öflugt verkfæri starfsfólks, nemenda og kennara háskólanna. Uglan er safn af kerfum og tólum sem notendur háskólans nýta sér við nám, kennslu og stjórnsýslu. Uglan er aðgangsstýrð og þannig er hver og einn notandi með sýna eigin Uglu og hafa þeir aðgang að mismunandi síðum Uglunnar. Ákveðnir hlutar Uglu eru opnir eins og t.d. kennsluskrá.

Uglan var fyrst tekin í notkun 21. september  2001 af Háskóla Íslands. Notendum hefur fjölgað jafnt og þétt í gegnum árin. Sumarið 2022 voru 6 skólar sem notuðu Uglu sem sitt innra net. Það eru Háskóli ÍslandsHáskólinn á AkureyriHáskólinn á HólumLandbúnaðarháskóli ÍslandsListaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst. Samtals eru virkir notendur Uglu orðnir fleiri en 55.000 (sumarið 2021).

Uglan tengist merki Háskóla Íslands á skemmtilegan hátt því að í grískri goðafræði þá var Aþena, sem er í merki Háskóla Íslands, með uglu á öxlinni. Uglan var sögð sýna Aþenu það sem hún sjálf sá ekki og þannig gefa Aþenu allan sannleikann. Hún var einnig tákngervingur fyrir visku og þekkingu.

Uglan er hönnuð og viðhaldið af hugbúnaðardeild UTS.

Leiðbeiningar um Uglu er nú að finna í Uglu á forsíðu undir Ugluleiðbeiningar.

  • Kennurum er bent á að leiðbeiningar fyrir Canvas er að finna á Canvasvef Kennslumiðstöðvar.
  • Hér má sjá almennt kynningarmyndband fyrir Uglu:
  • Hér má sjá Nýnema kynningu á Uglu:

SmáUglan er app sem hægt er að sækja fyrir snjallsíma og spjaldtölvur sem notast við Android og iOS (iPhone, iPad). Þannig er auðvelt að nálgast allar helstu upplýsingar sem notendur Uglu nota hvað mest dags daglega eins og:

  • Dagurinn (stundatafla, fundir og viðburðir)
  • Vinnustund
  • Námskeið
  • Tilkynningar
  • Próftafla
  • Þjóðskrá
  • Matseðill Hámu og Heimshorns
  • Viðburðir
  • Opnunartími bygginga
  • Símaskrá starfsmanna
  • Lausar tölvur
  • o.fl.

Nóg er að skrá sig inn einu sinni með nettfangi og lykilorði og þá er SmáUglan tilbúin til notkunar.

Þú getur valið hvaða upphafssíða kemur upp þegar þú opnar SmáUgluna og hvaða flýtileiðir þú ert með á stikunni neðst. Hér í Uglu er að finna leiðbeiningar hvernig það er gert: SmáUglan - leiðbeiningar.