Háskólaræktin

Image
Íþróttahús Háskóla Íslands

Aðgangur í Háskólaræktina kostar 12.000 krónur fyrir háskólaárið. Nemendur og starfsfólk HÍ geta keypt aðgang á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi. Aðgangur gildir í alla auglýsta tíma, í tækjasal og gufubað. Notendur fá ekki afhent kort heldur er hlið í anddyri þar sem hægt er að skrá sig inn.
Starfsfólk í minnst hálfu starfshlutfalli getur gert samgöngusamning og fengið þannig frían aðgang að Íþróttahúsinu.

Dagskrá í sal á vormisseri 2024

Afgreiðslutími:

Mánudaga - fimmtudaga: 7:00 - 22:00
Föstudaga:  7:00 - 20:00
Laugardaga: 8:00 - 18:00

Íþróttahúsið er lokað á hátíðisdögum, yfir jól og áramót og sex vikur á miðju sumri.

Íþróttahúsið er opið öllum nemendum og starfsfólki Háskólans.

Já, hægt er að leigja íþróttasalinn fyrir lokaða hópa á opnunartíma íþróttahússins.

Leigan fyrir 45 mín:

  • 3000 kr. milli 07:00 - 16:00 á virkum dögum
  • 4000 kr. eftir kl 16:00 og um helgar 

Óskað er eftir bókun með því að senda póst á ithrottahus@hi.is. Ef tíminn sem óskað er eftir er laus þarf að greiða gjaldið á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.

Starfsmenn íþróttahúss eru Birna Úlfarsdóttir og Pálmi Phuoc Du, sími 832 1309, netfang ithrottahus@hi.is

Íþróttahúsið er gamalt og því miður ekki vel útbúið fyrir hjólastóla. Þar eru háir þröskuldar og engin lyfta.

Aðgangur í íþróttahús HÍ miðar við háskólaárið. Á haustin er því einungis selt fyrir háskólaárið, með þeirri undantekningu að skiptinemar sem eru einungis skráðir við skólann eitt misseri, þeim býðst að kaupa einungis haustmisserið á 6.000 kr. Eftir áramót er hægt að kaupa aðgang fyrir vormisseri á 6.000 kr.