Gistiaðstaða fyrir fræðafólk

Image
""

Háskóli Íslands hefur til umráða 27 herbergi á 3. hæð í norðurálmu Sögu ætluð fræðafólki sem kemur til samvinnu við Háskólann í skamman tíma. Öll herbergin eru tveggja manna með prívat baðherbergi og eru leigð með sængurfatnaði og handklæðum.

Einungis er hægt að leigja herbergi þeim sem hefur tengsl við Háskólann en starfsfólk HÍ getur bókað herbergi fyrir sína gesti í gegnum bókunarvef.

Lágmarksleigutími er þrjár nætur. Herbergin eru almennt ekki leigð samfellt lengur en í sex vikur og óheimilt er að leigja fleiri en fimm herbergi sama leigutaka. Herbergin eru hvorki þrifin né skipt á sængurfatnaði eða handklæðum meðan þau eru í útleigu, aðeins á milli leigjenda. Gestir hafa aðgang að fullbúnu þvottahúsi á hæðinni og geta pantað auka þrif gegn greiðslu.

ATH ennþá eru framkvæmdir í gangi í suðurálmu Sögu.

Herbergin

25m2 herbergi með hjónarúmi og prívat baðherbergi.

Aðgangur er að sameiginlegu eldhúsi og þvottahúsi á hæðinni.

25m2 herbergi með tveim rúmum og prívat baðherbergi.

Aðgangur er að sameiginlegu eldhúsi og þvottahúsi á hæðinni.

25m2  herbergi með lítilli eldhúsinnréttingu, hjónarúm, prívat baðherbergi o.s.frv. Möguleiki á samtengdu herbergi (+25m2) fyrir gistingu fyrir allt að 4 einstaklinga. Sameiginlegt þvottahús á hæðinni.  Forgangur er fyrir lengri dvalir í þessari tegund herbergja og er þar miðað við lágmark 2 vikur. Hámarksleigutími á herbergi er 6 vikur, sjá reglur og viðmið fyrir herbergi gestaíbúða.

Hægt að hafa opið á milli í samtengt herbergi:

Gjaldskrá

Fast þjónustugjald 7.500 kr fylgir hverri bókun. Herbergi eru þrifin eftir brottför, en ekki á meðan á dvöl stendur.

Gjaldskrá á Sögu
Einfalt herbergi 25m2 7.500 kr. nóttin
Herbergi með eldhúsi 25m2 9.500 kr. nóttin
Herb. með eldhúsi+samtengt herbergi 12.750 kr. nóttin

Fræðasvið HÍ fá 25% afslátt af næturgjaldi.

Afbókunargjald - ef afbókað með minna en 7 daga fyrirvara Þrjár nætur greiddar
Síðbúin brottför (Late checkout) Greitt fyrir eina auka nótt
Auka þrif (hrein handklæði og rúmföt innifalið) fyrir lengri dvöl 7.500 kr
Útkall öryggismiðstöðvar (ef gestur læsir sig úti utan vinnutíma umsjónarmanna HÍ) 9.000 kr

Algengar spurningar

Aðgangi að herbergjum er stýrt með lyklakortum sem gestir/tengiliðir fá afhent í upphafi leigutíma.

  • Lyklakortin eru afhent á Þjónustuborðinu Háskólatorgi á opnunartíma (mán - fim 8:30 - 16:00 og fös 8:30 - 15:00) og ef gestur getur ekki nálgast lyklakort er það á ábyrgð tengiliðs innan HÍ að sækja lyklakort og koma þeim til gesta.

 

Gestir sem eru að greiða sjálfir fyrir gistingu fá sendan greiðsluhlekk þegar þau koma, en einnig er hægt að greiða á Þjónustuborðinu Háskólatorgi á meðan á dvöl stendur.

Kostnaður á viðfangsnúmerum HÍ er millifærður mánaðarlega eftir að leigu lýkur hjá reikningshaldi.

Ef stofnun utan Háskólans vill greiða fyrir herbergið þarf að senda upplýsingar í tölvupósti á gestaibudir@hi.is og taka fram:

  • fullt nafn greiðanda 
  • kennitölu (ef við á) 
  • heimilisfang
  • netfang sem senda á reikning á
  • aðrar upplýsingar sem óskað er eftir að komi fram á reikningi

Öll samskipti vegna reikninga fara fram gegnum gestaibudir@hi.is.

Herbergin eru öll á 3. hæð í norðurálmu Sögu.

Herbergin eru öll tveggja manna með prívat baðherbergi og litlum ísskáp. Sex herbergi eru með lítilli eldhúsinnréttingu og möguleika á samtengdu herbergi.

Á hæðinni er sameiginlegt eldhús og sameiginlegt þvottahús, en þar er að finna þvottavél, þurrkara, straujárn, strauborð og fleira gagnlegt til afnota á meðan á dvöl stendur. 

Þráðlaust net er innifalið en rúter ekki kominn upp í öllum herbergjum - það er rúter í sameiginlegu eldhúsi sem allir hafa aðgang að.

Það er SSID og lykilorð á rúterum í öllum herbergjunum.

Ef gestur nær ekki samband við rúter sem er staðsettur í herberginu né þann sem er í sameiginlegu eldhúsi, er hægt að senda póst á gestaibudir@hi.is og fá uppgefið SSID og lykilorð á þeim rúter sem er staðsettur næst þínu herbergi.

Saga hússins og uppsetning er slík að hugrenningartengsl okkar allra eru sterk til hótelreksturs. Við reynum að bjóða upp á sem flest þægindi fyrir gesti á herbergjum, en eðli leigunnar á meira skylt við íbúðir sem leigðar eru með húsgögnum. Gestir sjá sjálfir um þrif á meðan á dvöl stendur og hafa aðgang að eldhúsi og þvottahúsi. Ef gestur læsir sig óvart úti þarf gestur sjálfur að hafa samband við viðeigandi aðila og, ef við á, bera kostnað af útkalli öryggismiðstöðvar. Nauðsynleg símanúmer eru send á gesti/tengilið fyrir komudag.

Gestir eru beðnir um að skila lyklakortum í þar til gerðan póstkassa á ganginum á 3. hæð

Ef gestur hefur afhent tengilið lyklakort við brottför er tengiliður beðinn um að koma kortinu á Þjónustuborðið Háskólatorgi við fyrsta tækifæri.

Allir sem starfa við Háskóla Íslands geta bókað herbergi á Sögu en þurfa alltaf að gefa upp hi-netfang og viðfangsnúmer.

Herbergin eru ætluð sem gistiaðstaða fyrir fræðafólk sem kemur til samstarfs við háskólann í stuttan tíma.

Ekki þarf að rökstyðja tengsl fræðamannsins við HÍ við bókun. Sá sem bókar þarf eingöngu að gefa upp hi-netfang sitt/tengiliðs og viðfangsnúmer þess verkefnis/deildar sem ber ábyrgð á dvöl gestsins.

Tengiliður (starfsmaður sem bókar) ber ábyrgð á því að gestir fái allar nauðsynlegar upplýsingar og sjá einnig í mörgu tilvikum um að afhenda gestum lykla. Ef gestur fer án þess að greiða eða afbókar með minna en 7 daga fyrirvara er fyrst haft samband við tengilið vegna greiðslu.

Stofnanir utan HÍ sem áður höfðu afnot af gestaíbúðum HÍ hafa einnig afnot af herbergjum á Sögu og gefa þá upp kennitölu og heiti stofnunar í stað viðfangsnúmers við bókun. 

    Ef gestur hefur týnt lyklum að herbergi eða er læstur úti að öðrum ástæðum?

    • á almennum skrifstofutíma er hægt að hafa samband við Þjónustuborðið Háskólatorgi (mán-fim 8:30 - 16:00, fös 8:30 - 15:00) sími 525-4000
    • virka daga milli 16:00 og 22:00 og laugardaga milli 7.30 og 17:00 er hægt að hafa samband við vakthafandi umsjónarmann í síma 834-6512
    • á öðrum tímum er hægt að hringja í Öryggismiðstöðina í síma 530-2400 en gestur þarf þá að bera kostnað af útkallsgjaldi öryggismiðstöðvar - sjá verðskrá hér að ofan. 

    Ef eitthvað er bilað í herberginu:

    • Sendu póst á gestaibudir@hi.is
    • Ef það er alvarleg bilun:
      • Á dagvinnutíma skal hringja í síma 852-7401
      • virka daga milli 16:00 og 22:00 og laugardaga milli 7.30 og 17:00 er hægt að hafa samband við vakthafandi umsjónarmann í síma 834-6512

    Ef þú vilt koma á framfæri kvörtun eða ábendingu varðandi aðstöðuna á Sögu: