Skráning í námskeið

Nemendur bera sjálfir ábyrgð á að skrá sig í námskeið og breyta skráningu ef þess þarf. Skráning í námskeið er líka skráning í próf og því mikilvægt að skráningin sé alltaf rétt. 

Breyta skráningu í námskeið

Þegar kennsla hefst bæði á haustin og vorin geturðu skráð þig í og úr námskeiðum í þinni Uglu. Þar birtist borði á forsíðunni þegar opnað er fyrir skráningu og hann hverfur þegar skráningarfrestur er liðinn. Mikilvægt er að muna eftir að vista valið og athuga í Uglan mín - námskeiðin mín að skráningin hafi tekist.

Nánari upplýsingar um skráningartímabil má sjá í kennslualmanaki Háskólans.

Árleg skráning

Á hverju vori, frá byrjun mars fram í miðjan apríl, þarftu að skrá þig í námskeið fyrir næsta háskólaár ef þú ætlar að halda áfram í núverandi námi. Er það gert í Uglu á sama hátt og þegar breytt er námskeiðavali í upphafi misseris. Þá velurðu námskeiðin sem þú ætlar að taka. Að því loknu færðu upp möguleikann til að greiða skrásetningargjaldið í Uglunni þinni.

Nemendaskrá tekur við beiðnum um skráningu í og úr námskeiðum í þeim tilvikum þegar nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í gegnum Uglu á auglýstum tímabilum. Athugaðu að í sumum tilvikum gætirðu einnig þurft heimild til skráningar frá þinni deild. Beiðnir til nemendaskrár skulu berast á nemskra@hi.is.

Þú sérð námskeiðin þín í Uglu (Uglan mín – Námskeiðin mín) og aftan við hvert námskeið er tákn fyrir úrsögn sem þú smellir á. Athugaðu að táknið er aðeins virkt þegar úrskráning er í boði. Síðasti dagur til úrskráningar á haustmisseri er 15. september og á vormisseri 1. febrúar.

Athugaðu að breytingar á námskeiðaskráningu koma ekki fram í stundatöflu fyrr en eftir nokkra klukkutíma.
 

  • Fullt nám á einu háskólaári er 60 ECTS einingar, 30 ECTS einingar á hvoru misseri.
  • Þú mátt þó skrá þig í allt að 40 ECTS einingar á misseri.
  • Ef þú vilt skrá þig í enn fleiri einingar þarftu að sækja sérstaklega um það hjá deildinni þinni.

Í skráningu í Uglu færðu upp tillögur að námskeiðum miðað við námsár og lokin námskeið á þínum námsferli, en þú stjórnar þínum námshraða, það er hvort þú vilt vera í fullu námi eða ekki. Það er einnig mikilvægt að skoða sína námsleið vel í kennsluskránni, því þar færðu yfirsýn yfir skyldunámskeið og valnámskeið eftir námsárum og stundum ítarlegri upplýsingar um þau valnámskeið sem þér standa til boða. Ef þú þarft aðstoð við námsskipulag stendur þér alltaf til boða að ræða við náms- og starfsráðgjafa.

Breyting á námleið er aðeins möguleg í grunnnámi. Opið er fyrir umsóknir á þessum tímabilum: 
Fyrir haustið er opið frá 1. mars - 15. júní og aftur frá 1. ágúst – 5. september
Fyrir vorið er opið frá 1. október – 21. janúar
Ef námskeiðaval er opið í Uglu þá er sótt um breytingu á námsleið í gegnum þann möguleika en annars er hægt að sækja um í gegnum Ugluna undir Uglan mín – Umsókn um breytingu á námsleið.