Skápaleiga

Nemendur geta tekið á leigu skápa undir eigin muni sem þeir nýta í skólastarfi. Skáparnir eru staðsettir á eða í námunda við Háskólatorg. Leigugjald er 1.500 krónur fyrir hvert misseri.

Því miður er takmarkað magn af skápum til leigu og því gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Þjónustuborð á Háskólatorgi sér um útleigusamning, tekur við greiðslu og afhendir lykil að skáp.

Athugið að HÍ getur ekki borið ábyrgð á verðmætum sem nemar geyma í skápum.

Skápur skal vera hreinn og tómur eða eins og hann var þegar tekið var við skápnum.

Lykli skal skilað á Þjónustuborðið Háskólatorgi í lok misseris eða eigi síðar en

  • 20. desember á haustmisseri
  • 31. maí á vormisseri
  • 20. ágúst vegna sumarmisseris

Ef lykli er ekki skilað tímanlega þarf að greiða 1.500 krónur aukalega.

  1. Upplýsingar um leigu á munaskáp er hægt að fá hjá Þjónustuborði HÍ á Háskólatorgi.
  2. Skáparnir eru eingöngu til leigu fyrir nemendur í Háskóla Íslands.
  3. Til að fá lykla að munaskáp þá verður viðkomandi að koma á Þjónustuborð á HT til að fá lykla afhenta og til að veita nauðsynlegar upplýsingar 
  4. Leiga á skáp er 1.500 kr. fyrir hverja önn.
  5. Skila skal lykli fyrir hvern skáp í lok hverrar annar. Nemendum ber að skila lyklum eigi síðar en 20. des vegna haustmisseris, 31.maí vegna vormisseris og 20.ágúst vegna sumarmisseris.
  6. Ef lykli er ekki skilað tímanlega þarf viðkomandi að greiða auka 1.500 kr. gjald.
  7. Þegar lykli er skilað skal skápur vera hreinn og tómur eða eins og hann var þegar tekið var við skápnum.
  8. Ef nemendur verða uppvísir að skemmdum á nemendaskápum verða þeir krafðir um greiðslu vegna tjónsins.
  9. Ef brotist er inn í skáp þá ber HÍ ekki ábyrgð á munum sem að voru í skápnum.
  10. HÍ áskilur sér rétt til leitar í nemendaskápum ef nauðsyn krefur avo sem ef grunur leikur á að öryggi nemenda sé í húfi eða að ólögmætir hlutir reynist í nemendaskáp. 
  11. Öll umsjón með lyklum og skápum er á Þjónustuborði HÍ á Háskólatorgi.