Óskilamunir

Allir óskilamunir sem finnast í kennslustofum og almennum rýmum bygginga við Sæmundargötu er hægt að nálgast á Þjónustuborði Háskólatorgi.

Þeir munir sem verða eftir í öðrum byggingum HÍ eru að finna á þjónustuborðum bygginga eða umsjónarmönnum bygginga HÍ.

Á korti af háskólasvæðinu geturðu smellt á byggingar til að finna nafn og símanúmer viðkomandi umsjónarmanns.

 

Athugið að einnig geta nemendur og starfsfólk vakið athygli á óskilamunum á eigin spýtur í smáauglýsingum í Uglu í flokknum Tapað/Fundið.