Lesrými og hópavinna

Það eru nokkrir möguleikar fyrir nemendur sem vilja sinna námi sínu á háskólasvæðinu utan kennslustunda.

Opin lesrými eru opin öllum, lokuð lesrými eru ætluð nemendum HÍ og svo eru sérstakir möguleikar fyrir nemendur til að sinna hópavinnu. Þar að auki eru 14 tölvuver á háskólasvæðinu.

Í Þjóðarbókhlöðu, Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni, eru um 400 sæti við borð auk fjölmargra sæta við tölvur, lesvélar og í tón- og mynddeild. Auk þess eru hópvinnuherbergi á 3. og 4. hæð. Einnig eru nokkur sæti ætluð nemendum á öðrum bókasöfnum í byggingum Háskólans.

Á bókasafninu í Stakkahlíð, sem er sérhæft safn á sviði uppeldis, kennslu og umönnunar, er einnig lesrými og sæti við tölvur.

Í Gimli er góð lesaðstaða fyrir nemendur.

Opin lesrými og hópvinnuborð eru víða um háskólasvæðið, svo sem í Odda, Gimli, Öskju og á Háskólatorgi. 

Á sumum fræðasviðum geta meistara- og doktorsnemar sótt sérstaklega um fasta lesaðstöðu á háskólasvæðinu en framboð á slíku er takmarkað og best að snúa sér til viðkomandi fræðasviðs fyrir upplýsingar.

Nemendur geta bókað kennslustofur fyrir hópavinnu einu sinni í viku í allt að þrjá tíma án endurgjalds. Ef farið yfir þrjá tíma á viku þarf að greiða fyrir allan bókaðan tíma.

Athugið að beiðnir um stofur þurfa að berast á hefðbundnum vinnutíma og með minnst 4 klst. fyrirvara.

Til að bóka sendirðu póst á kennslustofur@hi.is og þarf sá sem bókar að taka fram fullt nafn og kennitölu ásamt nafni og númeri námskeiðsins.

Auk þess eru bókanleg hópvinnuherbergi á 3. og 4. hæð á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni.

Algengar spurningar

Opin rými, lesrými og tölvuver eru opin á sama tíma og byggingar HÍ. Utan opnunartíma geta nemendur með aðgangskort þó komið inn eftir lokun í ákveðnar byggingar til að nýta sér aðstöðuna.

Kennslustofur fyrir hópavinnu er einungis hægt að bóka á opnunartíma bygginga.