Netið heim

Starfsfólki og nemendum Háskóla Íslands býðst að tengjast Internetinu í gegnum Háskólanetið (HInet).

Ef þú velur að tengjast um HInet mun netumferð þín fara í gegnum HÍ.

Þeir sem búa á Stúdentagörðum býðst ókeypis nettenging í gegnum Garðanet, íbúar á Sögu fá beini (router) uppsettan og tilbúin, aðrir íbúar þurfa að útvega sér beini (router) eða tengja eina tölvu með vír með því að fylgja leiðbeiningunum hér að neðan.

Internet tenging við HInet er ætluð til þess að nemendur og starfsfólk geti nýtt sér netið við nám sitt og starf. Fylgst er með magni umferðar til og frá notanda. Sjái netstjórn HInet óeðlilega mikla umferð verður viðkomandi að geta réttmætt notkun sína. Venjulegir notendur munu ekki þurfa að huga að þessu en þess má geta að t.d. torrent skráarskiptiforrit deila stöðugt efni því, sem hefur verið hlaðið niður og slíkt getur valdið óeðlilega mikilli umferð út frá viðkomandi notanda.

Öllum notendum ber að fylgja notkunarskilmálum RHnets.

Stúdentagarðar - Garðanet

  • Þú sækir um netið hjá Félagsstofnun Stúdenta með því að gefa upp notandanafn/kennitölu, athugið að aðeins aðilinn sem er skráður fyrir íbúðinni getur sótt um netið.
  • Vert er að taka fram í byrjun að kerfi stúdentagarða sendir upplýsingar um nýja leigutaka klukkan 13 og 18 á hverjum degi og þá fyrst er hægt að tengjast netinu.
  • Íbúar á Sögu fá beini (router) uppsettan og tilbúin með nafni og lykilorði, aðrir íbúar þurfa að útvega sér beini (router) eða tengja eina tölvu með vír með því að fylgja leiðbeiningunum hér að neðan.

Vert er að taka fram í byrjun að kerfi stúdentagarða sendir upplýsingar um nýja leigutaka klukkan 13 og 18 á hverjum degi og þá fyrst er hægt að tengjast netinu, íbúar á Sögu þurfa ekki að fylgja þessum skrefum.

Til þess að virkja netið þá þarf fyrst að senda inn umsókn með WAN MAC-vistfang (address) beinis (router), athugið að vistfangið er ekki endilega það sama og er skráð á miðanum á beininum.

  1. Byrjaðu á því að tengjast beini (router), annaðhvort þráðlaust eða beint í gegnum netsnúru:
    • Þráðlaust: Tengdu netsnúruna í WAN tengið á routernum og tengdu hinn endan við tengil á veggnum, tengdu síðan tölvuna við hann þráðlaust, þú sérð oftast nafnið og lykilorðið fyrir þráðlausa netið á miðanum undir beininum, það skiptir ekki máli þótt það er ekkert net.
    • Vírað: Tengdu netsnúruna við eitt af LAN tengjunum aftan á beininum, tengdu síðan hinn endan við tölvuna.
  2. Núna skaltu finna IP tölu beinis og slá henni inn í vefvafra.
    • Það er oftast hægt að finna IP töluna eða vefslóðina fyrir stjórnborðið á miða sem er á beininum eða í gegnum leiðbeiningarnar sem fylgdu honum (t.d. 192.168.1.1 eða https://tplinkwifi.net/).
    • Þú getur líka opnað "Skipanakvaðning" (Command Prompt) í Windows og slegið þar inn "ipconfig", ef þú ert tengdur við beininn í gegnum netsnúruna þá finnur þú IP töluna undir "default gateway".
  3. Skráðu þig inn á stjórnborðið, notandanafnið og lykilorðið á að vera hægt að finna á miðanum undir beininum eða með leiðbeiningunum sem fylgdu honum.
    • Notandanafnið er oftast "admin"
    • Lykilorðið getur verið "admin" eða "1234".
    • Hægt er að grunnstilla beininn (factory reset) til þess að virkja upprunalega lykilorðið.
  4. Staðsetjið WAN MAC-vistfangið í stjórnborðinu, oftast er hún undir flipum eins og “Internet” eða “Status”, vistfangið ætti að vera eins og MAC-vistfangið sem er á miðanum fyrir utan mögulega síðustu 1-2 stafina.
  5. Sendið inn umsókn með WAN MAC-vistfanginu í gegnum Uglu, hægt er að finna síðuna undir Tölvuþjónusta → Umsóknir → Nettenging á stúdentagörðum
    • Bíða þarf í um klukkustund áður en WAN MAC-vistfangið er orðið virkt í kerfinu.
    • Ef það birtast skilaboð um að notandi er ekki skráður á görðunum þá þarf að tala við stúdentagarða (FS) og biðja um net með því að gefa upp kennitölu/notandanafn.
    • Ef það birtast skilaboð sem segja að Mac virðist þráðlaust þá getur verið að beinir sé í brúar-ham (bridge mode) í staðinn fyrir beinis-ham (routing mode). Hægt er að reyna að grunnstilla beininn og leita síðan aftur að WAN-MAC-vistafang beinis.

Tengja beini við net:

  1. Tengdu netsnúruna í WAN tengið á beininum og tengdu hinn endan við tengil á veggnum, aðeins einn veggtengill er virkur í íbúðinni og þú gætir þurft að prófa fleiri en einn.
  2. Núna áttu að geta tengst netinu.

Ef þú vilt tengjast netinu án þess að hafa beini (router) þá getur þú fylgt skrefunum hér að neðan:

  1. Byrjið á því að finna MAC-vistfang (address) ethernet kortsins í tölvunni.
  2. Opnið umsóknar síðuna í Uglu, hægt er að finna hana undir Tölvuþjónusta - Umsóknir - Nettenging á stúdentagörðum
  3. Sláið inn MAC-vistfangið og klárið umsókn, bíða þarf í um klukkustund áður en MAC-vistfangið er orðið virkt í kerfinu, það er aðeins hægt að hafa eitt MAC-vistfang skráð í einu.
    • Ef það birtast skilaboð um að notandi er ekki skráður á görðunum þá þarf að tala við stúdentagarðana og biðja um net með því að gefa upp kennitölu/notandanafn.
  4. Aðeins einn veggtengil er virkur í íbúðinni, ethernet tengið á tölvunni ætti að blikka ef snúran er tengd við réttan tengil.

Ef samband rofnar við netið á Stúdentagörðunum má athuga eftirfarandi:

  1. Umferð getur verið takmörkuð vegna vírussmits eða mikillar umferðar. Viðkomandi fær þá tölvupóst þess efnis frá netmenn@hi.is.
  2. Ef þú býrð á Sögu eða annars staðar þar sem beinir (router) er úthlutaður með íbúðinni þá getur þú haft samband við FS ef þú telur vandamálið liggja hjá beininum (router). Það hefur gerst að vitlaust lykilorð hafi verið skráð á beininn.
  3. Hugsanlegt er að vitlaust MAC-vistfang hafi verið skráð (íbúar sem fá úthlutaðan beini eins og á Sögu þurfa ekki að pæla í þessu). Skrá þarf WAN MAC-vistfang beinis (routers) eða MAC-vistfang (Physical Address) Ethernet netkortsins (ekki wireless) á tölvu. Sjá leiðbeiningar hér að ofan
    • ​​​Ef það birtast skilaboð í Uglu sem segir að Mac "virðist þráðlaust" þá getur verið að beinir sé í brúar-ham (bridge mode) í staðinn fyrir beinis-ham (routing mode), þú getur prufað að grunnstilla beininn (factory reset) og leitað síðan aftur að WAN-MAC-vistafang beinis í stjórnborðinu.
  4. Ganga úr skugga um að viðkomandi sé skráður fyrir íbúðinni. Hafðu samband við Stúdentagarða.
    • Ef það birtast skilaboð í Uglu um að notandi er ekki skráður á görðunum þá þarf að tala við stúdentagarðana og biðja um net hjá þeim.
    • Ef þú varst að færa þig á milli íbúða á stúdentagörðunum þá getur verið að netið sé ennþá skráð á gömlu íbúðina í Garðaskrá, hafðu samband við FS.
  5. Ekki hafa netkortið stillt á fasta IP tölu heldur á sjálvirka IP tölu (Obtain an IP address automatically).
  6. Slökkva á Firewall td. ZoneAlarm, Norton, Trend PC-cillin því þeir stoppa oft umferð.
  7. Notast við óskaddaðan og viðurkenndan netkapal. Oft gott að prófa annan kapal til að sannreyna að hann sé ekki vandamálið.
  8. Netkortið sé í lagi og reklar (drivers) fyrir það uppsettir.
  9. Aðeins einn veggtengill er virkur í íbúðinni og þú gætir þurft að prófa fleiri en einn.

Ef farið hefur verið yfir öll þessi atriði án árangurs er hægt að leita frekari aðstoðar í Tölvuþjónustu UTS á Háskólatorgi eða Stúdentagarða ef beinir (router) er úthlutaður með íbúðinni. Tölvuþjónustan er opin á virkum dögum kl. 8:00-16:00. Sími: 525-4222 og netfang: help@hi.is.

Netið heim

Sótt er um "Netið heim" í gegnum Uglu, síðuna finnur þú undir Tölvuþjónusta → Umsóknir → Netið heim.

  • Nemendur geta sótt um tengingu frá Símanum.
  • Starfsfólk getur sótt um tengingu frá Símanum (Míla) eða Gagnaveitu Reykjavíkur (Ljósleiðarinn). Síminn notar ljósleiðara frá Mílu en ef hún er ekki í boði þá mögulega tengir Síminn viðkomandi í gegnum GR. Þá þarf að fara eftir GR leiðbeiningunum hér að neðan.

Til að geta tengst netinu heima í gegnum HÍ þarft þú að hafa virka heimtaug (tengingu) frá Símanum (Mílu) eða Gagnaveitu Reykjavíkur (Ljósleiðarinn).

Ef sótt er um net frá Símanum þá mun birtast notandanafn og lykilorð í lok umsóknar. Mikilvægt er að skrifa þessa auðkenningu hjá sér.

Hugið að því að segja upp Internetþjónustu hjá fyrri þjónustuveitu.

Úrvinnsla pantanna hjá Gagnaveitu Reykjavíkur (Ljósleiðarinn)

Panti viðskiptavinur þjónustu á ljósleiðaratengt heimili þá á hann ekki rétt á heimsókn verktaka enda er GR áður búin að senda verktaka á heimilið til að ganga frá búnaði og tengingum fyrir Ljósleiðarann. Pantanir sem berast á ljósleiðaratengd heimili eru afgreiddar þannig að rétthafabreyting er framkvæmd að því gefnu að ekki sé virkur viðskiptavinur fyrir á heimilinu.

Viðskiptavinir sem panta þjónustu frá GR á heimili sem ekki eru ljósleiðaratengd eiga rétt á heimsókn verktaka frá GR þeim að kostnaðarlausu. Það sem að verktaki GR gerir er að setja upp netaðgangstæki á hentugasta stað í samráði við íbúa, leggja innanhúslagnir frá inntakinu að netaðgangstækinu og leggja eina CAT5 þjónustulögn að hverju þjónustutæki, það er frá netaðgangstæki að router. CAT5 lagnirnar eru með þeim hætti að þær eru „plug and play“ fyrir viðskiptavin og miðast er við að lögnin sé lögð meðfram veggjum án sérstakra lagnastokka að þjónustutækjum. Leitast er við að hafa þær sem minnst áberandi og þannig að viðskiptavinur hafi möguleika á að bæta fráganginn seinna.

Markmið GR um afhendingartíma á þjónustu eru 15 dagar en tekið skal fram að það er einungis markmið en alls ekki loforð um að allar uppsetningar klárist á 15 dögum.

  1. Gjald er rukkað fyrir hverja nettengingu starfsfólks, en gjaldið greiðist af deild viðkomandi. Gjaldið sem deildinn greiðir má sjá á verðskrá Upplýsingatæknisviðs.
  2. Notandi þarf að borga fyrir línugjald, leitið til símafyrirtækjanna til að fá uppgefið verð hjá þeim. 
  3. Notandi þarf að borga fyrir gagnaflutningsgjald, leitið til fyrirtækjanna til að fá uppgefið verð hjá þeim.
  4. Gagnamagn:
    • Síminn: Nauðsynlegt er að borga fyrir net áskrift, við ábyrgjumst ekki að gagnamagn í gegnum Háskólan telji eða telji ekki í þessum áskriftarpakka.
    • Gagnaveitan: Endalaust
  5. Notandi þarf að útvega sér beini (router):

Þessar leiðbeiningar eiga ekki við um ljósleiðaratengingu Gagnaveitunnar. Síminn notar ljósleiðara frá Mílu en ef hún er ekki í boði þá mögulega tengir Síminn viðkomandi í gegnum GR.

Hér eru almennar leiðbeiningar sem sýna hvernig á að tengja beini (router) í gegnum Símann.

  1. Byrjaðu á því að tengjast beini (router), annaðhvort þráðlaust eða beint í gegnum netsnúru.
    • Þráðlaust: Tengdu netsnúruna við internet tengið á beininum og tengdu hinn endan við tengil á veggnum, tengdu síðan tölvuna við hann þráðlaust, þú sérð oftast nafnið og lykilorðið fyrir þráðlausa netið á miðanum undir beininum, það skiptir ekki máli þótt það er ekkert net.
    • Vírað: Tengdu netsnúruna við eitt af LAN tengjunum aftan á beininum, tengdu síðan hinn endan við tölvuna.
  2. Sláið inn IP tölu beinis inn í vefvafra, hann er mismunandi eftir búnaði.
    • Hér er dæmi um IP tölu beina: 192.168.1.254 eða 192.168.1.1 eða 10.0.0.138.
    • Það er oftast hægt að finna IP töluna eða vefslóðina fyrir stjórnborðið á miða sem er á beininum eða í gegnum leiðbeiningarnar sem fylgdu honum.
    • Það er líka hægt að opna "Skipanakvaðning" (Command Prompt) í Windows og slá þar inn "ipconfig", ef þú ert tengdur við beininn í gegnum netsnúruna þá finnur þú IP töluna undir "default gateway".
    • Athugið að ekki er hægt að tengjast beini ef proxy stillingar eru á vafranum.
  3. Þá er beðið um notandanafn, notandanafnið er "admin" og lykilorðið getur verið t.d. admin, epicrouter eða 1234. Best er að hafa þessar upplýsingar tiltækar frá söluaðila beinisins.
  4. Þá opnast heimasíða beinis, hér þarf að fara í Set Up eða Wizard.
  5. Undir "Operating mode" veljið "Routing Mode" og undir "Connection type" veljið "PPPoE".
    • Stundum hefur þurft að slá inn stillingar: VPI (0 eða 8), VCI (33,35 eða 48), Encapsulation (PPPoE eða PPPoA), Framing (LLC eða VC Mux). Þessar upplýsingar þarf að fá frá viðkomandi símafyrirtæki.
  6. Internet Service Provider (ISP): Hér er beðið um það notandanafn og lykilorð sem þú fékkst uppgefið þegar þú sóttir um netið heim í Uglunni. ATH að nota þitt notandanafn og setja svo aftan við það @nemendur.hi.is (nemendur) eða @starfsm.hi.is (starfsmenn).

Ekki ætti að þurfa að tilgreina frekari stillingar í Wizard eða Set Up ferlinu. Þær sem eru þegar til staðar ætti að láta vera. Munið að vista breytingarnar

Þessar leiðbeiningar eiga ekki við um ljósleiðaratengingu Gagnaveitunnar. Síminn notar ljósleiðara frá Mílu en ef hún er ekki í boði þá mögulega tengir Síminn viðkomandi í gegnum GR.

Hér eru leiðbeiningar sem sýna hvernig á að tengja beini (router) frá Símanum.

  1. Byrjaðu á því að tengjast beini, annaðhvort þráðlaust eða beint í gegnum netsnúru.
    • Þráðlaust: Tengdu netsnúruna við internet/WAN tengið á beininum og tengdu hinn endan við tengil á veggnum, tengdu síðan tölvuna við hann þráðlaust, þú sérð oftast nafnið og lykilorðið fyrir þráðlausa netið á miðanum undir beininum, það skiptir ekki máli þótt það er ekkert net.
    • Vírað: Tengdu netsnúruna við eitt af LAN tengjunum aftan á beininum, tengdu síðan hinn endan við tölvuna.
  2. Sláið inn IP tölu beinisins inn í vefvafra, í þessu tilfelli er IP talan http://192.168.1.254.
    • Ef þú veist ekki IP töluna þá getur þú fundið hana í leiðbeiningunum frá símanum.
    • Einnig er hægt að opna "Skipanakvaðning" (Command Prompt) í Windows og slá þar inn "ipconfig", ef þú ert tengdur við beininn í gegnum netsnúruna þá finnur þú IP töluna undir "default gateway".
    • Athugið að ekki er hægt að tengjast beini ef proxy stillingar eru á vafranum.
  3. Þá er beðið um notandanafn, notandanafnið er "admin" og lykilorðið er hægt að finna undir "Access Key" aftan á beini.
    beinir síminn 1
  4. Þá opnast heimasíða beinisins, smellið á "Internet Connectivity".
    beinir síminn 2
  5. Hér þarf að færa inn stillingar:
    • Undir "Connection type" skal velja "PPP" tengingu.
    • Undir "Login" skaltu slá inn notandanafn án @hi.is og beint fyrir aftan skaltu setja "@starfsm.hi.is" eða "@nemendur.hi.is" eftir því hvor á við.
    • Undir "password" skaltu slá inn lykilorðið sem þú fékkst uppgefið þegar þú sóttir um netið heim í Uglunni.
    • Að lokum skal smella á "Apply" neðst á síðunni. 

    beinir síminn 3
  6. Nú á uppsetningu að vera lokið og er þá einungis eftir að tengja beininn við vegg.

  • Þegar starfsfólk UTS eru búinn að virkja Internetþjónustu UTS á ljósleiðarasambandi hjá umsækjanda, þá er send staðfesting til hans í tölvupósti þess efnis.
  • Þessu næst þarf að endurræsa netaðgangstækið og beini (aftengja og tengja rafmagn).
  • Panti viðskiptavinur þjónustu á heimili sem er þegar ljósleiðaratengt þá á hann ekki rétt á heimsókn verktaka enda er GR áður búin að senda verktaka á heimilið til að ganga frá búnaði og tengingum fyrir Ljósleiðarann. Pantanir sem berast á ljósleiðaratengd heimili eru afgreiddar þannig að rétthafabreyting er framkvæmd að því gefnu að ekki sé virkur viðskiptavinur fyrir á heimilinu.
  • Viðskiptavinir sem panta þjónustu á heimili sem ekki eru ljósleiðaratengd eiga rétt á heimsókn verktaka frá GR þeim að kostnaðarlausu.  Það sem að verktaki GR gerir er að setja upp netaðgangstæki á hentugasta stað í samráði við íbúa, leggja innanhúslagnir frá inntakinu að netaðgangstækinu og leggja eina CAT5 þjónustulögn að hverju þjónustutæki, það er frá netaðgangstæki að router. CAT5 lagnirnar eru með þeim hætti að þær eru „plug and play“ fyrir viðskiptavin og miðast er við að lögnin sé lögð meðfram veggjum án sérstakra lagnastokka að þjónustutækjum. Leitast er við að hafa þær sem minnst áberandi og þannig að viðskiptavinur hafi möguleika á að bæta fráganginn seinna.
  • Markmið GR um afhendingartíma á þjónustu eru 15 dagar en tekið skal fram að það er einungis markmið en alls ekki loforð um að allar uppsetningar klárist á 15 dögum.

Síminn

Ef netið fer í gegnum Símann þá þarf að setja inn stillingar á beininn, sjá hér að ofan.

Gagnaveita Reykjavíkur

Þegar skipt er um beini, á heimtengingu yfir ljósleiðara Gagnaveitunnar, þá þarf starfsfólk UTS að breyta stillingum í kerfi GR, svo nýi beinirinn fá úthlutað IP tölu af neti HÍ.
Þetta er gert handvirkt og því er æskilegt að útskiptin eigi sér stað á dagvinnutíma og sé gert á eftirfarandi hátt;

  1. Hafa nýja beininn tilbúinn og tryggja að hann sé með Ethernet WAN tengi fyrir tenginu við tengibox GR.
  2. Senda skilaboð í gegnum þjónustugátt UTS og láta vita að skipt verði um beini.
  3. Starfsfólk UTS hefur samband og tímasetning fyrir útskiptin ákveðin.
  4. Nýr beinir er tengdur við sama tengi á tengiboxi GR og gamli beinirinn.
  5. Starfsmaður UTS skiptir um skráða MAC addressu fyrir beini í kerfi GR.
  6. Starfsmaður UTS endurræsir tengibox GR og beinir fær úthlutað IP tölu frá neti HÍ.
  7. Notandi breytir stillingum á nýja beininum til samsæmis við sínar þarfir. Eins og nafni þráðlausa netsins, hugsanlega lykilorði fyrir þráðlausa netið og lykilorði fyrir admin aðgang að rúternum.
     

Til þess að flytja þjónustuna frá einu heimili yfir á annað þá þarf gera eftirfarandi:

  • Síminn (Míla): Þú lætur Símann flytja tenginguna og breytir engum stillingum á beininum (router).
  • Gagnaveita Reykjavíkur: Sendu inn nýja umsókn í gegnum Uglu. Í athugasemd má taka fram hvenær á að flytja þjónusturnar, það er hvaða dag er GR óhætt að taka niður þjónustu á gamla notkunarstaðnum og flytja þær yfir á nýja notkunarstaðinn. Flutningur getur tekið 2-3 daga eftir að umsókn er sent inn.

Þú segir upp netinu í gegnum Uglu undir Tölvuþjónusta → Mínar tölvuþjónustur.

Hér eru algengustu vandamál sem koma upp varðandi netið heim í gegnum HÍ.

Netið datt út skyndilega. Athuga eftirfarandi:

  1. Viðkomandi gæti verið kominn á lista yfir mikla umferð og hefur þar af leiðandi fengið tölvupóst þess efnis.
  2. Slökkva og kveikja á beini (router). Hafið slökkt á beininum í allavega 30 sekúndur.
  3. Beinir (router) er tryggilega tengdur, símakapall/netkapall er heill og óskaddaður, prófa annan kapal.
  4. DSL línan sé virk frá viðkomandi fjarskiptafyrirtæki. DSL eða Line Sync ljós á að vera grænt. Viðkomandi fjarskiptafyrirtæki gefur upplýsingar um það.
  5. Ef skipt hefur verið um fjarskiptafyrirtæki þá þarf að sækja um "Netið heim" í Uglunni á nýjan leik.
  6. Ef skipt hefur verið á beini (router) þá þarf að fylgja leiðbeiningunum að ofan.
  7. Prófa annan net/símatengil fyrir router ef það er í boði.
  8. Í sumum tilfellum þarf að setja beininn upp aftur (Reset Factory Default Settings).
  9. Notandi er kominn á lista yfir vírussýktar vélar á Háskólanetinu. Hafið samband við Tölvuþjónustu UTS.

Hef aldrei náð internetsambandi. Athuga eftirfarandi:

  1. DSL línan sé orðin virk frá viðkomandi fjarskiptafyrirtæki. DSL eða Line Sync ljós á að vera grænt. Gott er að hringja í fjarskiptafyrirtæki og spyrja hvort línan sé tengd.
  2. Notendanöfn RHnets verða virk u.þ.b. 3-6 klst eftir umsókn hefur verið móttekin.
  3. Notast þarf við stillingar frá viðkomandi fjarskiptafyrirtæki en einungis setja inn notandanafn og lykilorð frá UTS.
  4. Mikilvægt að setja inn þitt eigið notandanafn hér: notandanafn@nemendur.hi.is eða notandanafn@starfsm.hi.is
  5. Stundum þarf að endurræsa (Factory Default Settings) beina (router) og stilla þá upp á nýtt. Hafa réttar stillingar frá viðkomandi símafyrirtæki til hliðsjónar.
  6. Sækja aftur um "Netið heim" í Uglunni og setja síðan nýja notandanafnið og lykilorðið inn í stillingar beinisins. Þetta á við í örfáum tilfellum þegar allt annað hefur verið sannreynt.

Tenging er sífellt að detta út eða missa samband, þá þarf að ganga úr skugga um eftirfarandi atriði:

  1. Smásíubúnaður rétt uppsettur á öllum símtækjum sem eru á DSL línunni.
  2. Prófa að aftengja önnur símtæki og leyfa router að vera einum í sambandi. Öll símtæki þurfa að vera með smásíu ef þau eru á sömu línu og router.
  3. Símasnúra frá beini (router) sé ekki með smásíu. Smásíur eiga aðeins að tengjast við síma og beinir á að fá hreint samband við inntakið.
  4. Símakapall / netkapall frá beini sé heill og dósin í veggnum ósködduð og í lagi. Gott að prófa annan kapal.
  5. Takmarka notkun T-stykkja (splitter) sem deila línunni niður til að einangra bilun í þeim.
  6. RJ-11 tengi stuðla að stöðugra sambandi heldur en eldri símaklær. Gamaldags símaklær og ADSL- / VDSL-samband fara ekki alltaf vel saman, þar sem klærnar liggja ekki jafn þétt að vírum í símadós og glæru kubbalöguðu tengin RJ-11 gera. Slíkt getur valdið titringi/sveiflu á símalínunni og þannig slitið samband milli beinis og símstöðvar.
  7. Fjarskiptafyrirtækin geta mælt línuna í heimahúsum.