Lögfræðiráðgjöf

Hlutverk lögfræðinga skólans er að vera stjórnendum og öðru starfsfólki til aðstoðar með lögfræðileg málefni tengd starfsemi stofnunarinnar. Lögfræðiteymi starfar á rektorsskrifstofu en auk þess er lögfræðingur á mannauðssviði og lögfræðiteymi á vísinda- og nýsköpunarsviði.

Til að fá aðstoð leitið þá beint til einstakra lögfræðinga sem sinna viðkomandi málaflokki.

  • Fyrir ráðgjöf er varðar meðferð nemendamála, bæði kvörtunar- og agamál, yfirlestur og rýni samninga, yfirlestur á reglum og reglubreytingum á vettvangi Háskólans og aðstoð við opinber innkaup skal hafa samband við lögfræðiteymi á rektorsskrifstofu.
  • Fyrir ráðgjöf er varðar mannauðsmál og vinnurétt skal hafa samband við lögfræðing á mannauðssviði.
  • Fyrir ráðgjöf er varðar vernd hugverka, tækniyfirfærslu, stofnun fyrirtækja og samningagerð skal hafa samband við lögfræðiteymi á vísinda- og nýsköpunarsviði.