Félagslíf og menning starfsfólks

Starfsfólki HÍ stendur ýmislegt til boða allt skólarárið en félagslíf skólans er fjölbreytt. Ýmsar uppákomur eru jafnt og þétt yfir skólaárið sem og eru ýmsar deildir með öflug starfsmannafélög.

Samkomur

Einu sinni á ári er haldin árshátíð fyrir allt starfsfólk skólans og maka þeirra. Árshátíðin er haldin á haustin en ekki alltaf á sama stað. Hún er auglýst sérstaklega á viðburðardagatali Uglu en auk þess eru sendir út tölvupóstar og fréttir inn á Uglu.

Á hverju hausti og vori býður skrifstofa rektors til haust- og vorfagnaðar. Þar er öllu starfsfólki ásamt mökum boðið upp á léttar veitingar og lifandi tónlist. Samkoman er haldin á Háskólatorgi og stendur yfir í u.þ.b. einn og hálfan klukkutíma. 

Árlega er haldið jólaball fyrir starfsfólk og nemendur Hí. Ballið er haldið í lok desember á Háskólatorgi og hefur verið vinsæll viðburður og alltaf er vel mætt á jólaballið bæði af nemendum og kennurum. Jólaböllin eru auglýst sérstaklega á viðburðardagatali Uglu en auk þess eru sendir út tölvupóstar og fréttir inn á Uglu.

Starfsmannafélög

Í HÍ eru starfrækt starfsmannafélög fyrir starfsfólk. Tilgangur er að efla félagsstarf og samheldni starfsfólks. Ekki eru allar deildir með slíka starfsemi hverju sinni.

Gleðibankinn er starfsmannafélag starfsfólks á Félagsvísindasviði. Gleðibankinn stendur fyrir ýmsum samkomum á skólaárinu m.a. götugrilli að hausti, skólasetningu á haustmisseri, sameiginlegum fordrykk í tengslum við árshátíð HÍ, jólafagnaði og vorgleði. Félagsmenn fá frítt inn á samkomur sem Gleðibankinn stendur fyrir. Félagsgjald er 500 kr. og dregið af launum mánaðarlega. Dagskrá Gleðibankans má sjá á heimasíðu  Félagsvísindasviðs. 

MIST er starfsmannafélag starfsfólks í miðlægri stjórnsýslu í stoðþjónustu og stjórnsýslustörfum. Áhugasamir geta tekið þátt í ýmsum atburðum þó þeir tilheyri öðrum sviðum skólans. Félagsstarfið er blómlegt en að jafnaði er eitthvað gert mánaðarlega. Í upphafi árs er gefin út dagsskrá með því sem að framundan er eins og t.d. pöbbkviss, pílukastmót, keilu, upplestur úr nýjum bókum í desember, bjórsmakk, páskabingó og vorferð.

Frekari upplýsingar er að finna hjá mist@hi.is

Facebook síða starfsmannafélagsins MIST

 

Starfmannafélag Menntavísindasviðs – MVS er með nokkra fasta atburði á hverju ári eins og vorferð, fordrykk fyrir árshátíð HÍ og jólagleði. Þeir sem hafa áhuga á að ganga í félagið greiða 5000 krónur árlega fyrir félagsaðild.

Fyrrum starfsfólki Háskóla Íslands og mökum þeirra stendur til boða að sækja morgunfundi annan hvern miðvikudag yfir vetrar tímann. Fundirnir eru haldnir í fundarsal safnaðarheimili Neskirkju frá klukkan 10 til 12. Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í síma 525 4000 eða senda tölvupóst á skolabaer@hi.is
Allir fundir eru auglýstir á Facebook-síðu hópsins
 

Tónlist og menning

Háskólatónleikar hafa verið haldnir reglulega yfir skólaárið í byggingum háskólans og koma margir af fremstu tónlistarmönnum landsins fram á þeim. Aðgangur er ókeypis. Dagskrá hvers misseris er birt á heimasíðu Háskólans þegar hún liggur fyrir.

Við skólann er starfræktur öflugur kvennakór sem er opinn öllum konum sem hafa áhuga og getu til að syngja í kór. Kórinn heldur tónleika reglulega og eru þeir auglýstir og öllum opnir.
Frekari upplýsingar er að finna á facebook síðu kórsins.

Listasafn Háskóla Íslands á um 1500 listaverk, skissur og gögn. Listasafnið hefur þá sérstöðu að deila sýningarrými sínu með stúdentum, starfsfólki og almenningi því að verk safnsins eru sett upp víðs vegar um stofnanir og byggingar háskólans. Auk þessa hefur Listasafn HÍ sett upp sýningar í samvinnu við önnur söfn.

Fræðsla og heilsurækt

Allt starfsfólk HÍ sem og nemendur geta keypt sér aðgang að Háskólaræktinni gegn vægri þóknun árlega. Hægt er að kaupa aðgang  í ræktina á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi sem gildir í alla auglýsta tíma, í tækjasal og gufubað allt skólaárið.

Áhersla er lögð á að bjóða starfsfólki HÍ upp á ýmislegt sem tengist bættri heilsu. Heilsuhópur er starfandi innan skólans og fylgir hann Heilsuárshring Auðnast. Þar er heilsuárinu skipt upp í fimm tímabil þar sem fólki er boðið upp á mismunandi heilsutengda þætti eftir tímabilum. Frekari upplýsingar er að finna í viðverudagatali Uglunnar. Heilsuhópurinn er einnig með sér síðu í Uglu sem er uppfærð reglulega.

Sjósundshópur starfsfólks HÍ, Sæmundur, hittist einu sinni til tvisvar í viku og fer saman í sjósund. Oftast er farið í kringum hádegi á þriðjudögum og/eða fimmtudögum. Hægt er að sækja um inngöngu í hópinn á Teams.

Flest svið eru með starfs- og/eða vinnudaga en þá er starfsfólki boðið upp á fyrirlestra, vinnustofur og fleira fræðandi. Hvert svið skipuleggur sína daga og miðast þeir við þarfir hvers sviðs hverju sinni. Markmiðið er þó alltaf það sama eða að byggja upp góða tengslamyndun á hverju sviði.