Greinar um þetta efni

Prentun fyrir starfsfólk

Háskóli Íslands hefur gert þjónustusamning við Ofar um rekstur og innleiðingu á miðlægu prentumsjónarkerfi fyrir starfsfólk HÍ.  Þessi lausn kallast "Prentský". Starfsfólk getur prentað á öllum aðgengilegum Prentskýs prenturum á Háskólasvæðinu.

Einnig bjóða deildir/svið upp á prentara sem eru fyrir utan "Prentský". Hægt er að fá aðstoð við uppsetningu á þeim með því að senda inn beiðni til Upplýsingatæknisviðs með staðsetningu prentarans sem þú vilt tengjast við.

Starfsfólk getur aðeins prentað í tölvuverum með því að kaupa prentkvóta.

Innskráning á prentara

Hægt að skrá sig inn á prentarann með netfangi og lykilorði eða PIN á nýjustu prenturunum.

Einnig er hægt að tengja kort / dropa við notandanafnið með því að leggja það að skannanum og skrá sig inn.  Eftir það er kortið/dropinn tengdur við aðganginn.

Uppsetning - gamla prentský

Hér er sýnt hvar gamla prentskýið er staðsett:

Staðsetning
  • Aðalbygging:
    • 1.hæð undir stiga í anddyri
    • 1.hæð Skrifstofa rektors
    • 2.hæð herb.222 Fjármálasvið
    • 3. hæð Hugvísindasvið
  • Askja:
    • 1. hæð á skrifstofu sviðs
    • 2.hæð austurenda
  • Árnagarður 4. hæð suðurenda
  • Edda:
    • 1. hæð
    • 2. hæð
  • Gimli: 3. hæð
  • Gróska:
    • 1. hæð í Vísindagörðum
    • 3. hæð í Tölvunarfræði
  • Háskólatorg: Mannauðsvið
  • Nýji Garður:
    • 1. hæð suðurendi
    • 2. hæð norðurendi
    • 3. hæð norðurendi
  • Tæknigarður:
    • 1. hæð
    • 2. hæð
    • 3. hæð
  • Setberg 1. hæð.
  • Skólabraut 3. hæð.
  • Stakkahlíð, Múla 2. hæð.
  • Veröld 3. hæð
  • VR2:
    • 2. hæð
    • 3. hæð
  • VR3:
    • 1. hæð
    • 2. hæð
    • 3. hæð

Svona er það sett upp:

Windows
  1. Smelltu á starthnapp og skrifaðu „keyra“ (Run) og smelltu á „enter“:prentsk1.png
  2. Skrifaðu inn slóðina \\prent.hi.is\prentsky-hi og smelltu á „Í lagi“ (OK):prentsk2.png
  3. Þá ætti tölvan að tengjast prentskýinu, þegar því er lokið ættirðu að geta prentað út. Prentun er svarthvít og báðum megin á síðu er sjálfgefið sé stillingum  ekki breytt.
  4. Þeir sem nota sínar eigin tölvur munu fá upp innskráningarglugga. Hér þarf að setja inn CS\ fyrir framan notandanafnið ykkar og einnig sleppa @hi.is. Hakið við "Muna skilríkin mín" (Remember my credentials).prentsky 3.png
MacOS
  1. Það þarf að byrja á því að ná í prentrekla.
  2. Keyrðu upp skrána og kláraðu uppsetninguna á reklinum (Continue → Agree → Install).
  3. Smelltu á Apple merkið (eplið) efst í vinstra horninu og farðu í "System Preferences."
    prentsky.jpg
  4. Opnaðu "Printers & Scanners."prentsky3.jpg
  5. Smelltu á plús-merkið neðarlega til vinstri í glugganum eða "Add Printer..." (eftir því hvaða útgáfu af MacOS þú ert með)
    MacOS eldra en 13:
    bæta við.png
    MacOS 13 Ventura:
    add printer.png
  6. Hægri smelltu einhvers staðar á autt pláss efst í glugganum (þú gætir þurft að halda inni Ctrl) og smelltu á "Customise Toolbar."
    customize toolbar.png
  7. Dragðu "Advanced" (tannhjólið) upp á stikuna og smelltu á "Done."
    prentsky4.jpg
  8. Smelltu næst á "Advanced" efst í glugganum og hafðu stillingarnar eins og í þessu skjáskoti hér að neðan.
    Type: LPD/LPR Host or Printer
    Device: Another Device
    URL: Settu inn slóðina lpd://notendanafn@prent.hi.is/prentsky-hi (athugaðu að nota þitt notandanafn í slóðinni án @hi.is)
    Name og Location: Þessir reitir mega vera eins og þú vilt, t.d. Prentský og Háskóli Íslands.
    Use: Veldu hér "Select Software...". Þá opnast gluggi sem sjá má í næsta skrefi.
    prentsky5.jpg
  9. Veldu rekilinn RICOH MP C3004ex PS (það er best að nota leitarreitinn til þess að finna hann) og smelltu á "OK:"
    prentsky6.jpg
  10. Smelltu á "Add:"
    prentsky7.jpg
  11. Þá er prentskýið uppsett á tölvunni og birtist eins og hver annar prentari.
    prentsky8.jpg
  12. Prentun er svarthvít og prentað báðum megin nema þeim stillingum sé breytt.
Linux

Leiðbeiningarnar eru ekki tæmandi fyrir allar linux útgáfur en ættu að virka fyrir flesta.

  1. Opna "Print Settings" og smella á "+ Add". Gætir þurft að slá inn lykilorð nokkrum sinnum í ferlinu:Prentsky linux 1.jpg
  2. Í "New Printer" glugganum smella á Network Printer -> Windows Printer via SAMBA. Undir SMB Printer setja inn: 130.208.143.155/prentsky-hi. Setja í Password uglu lykilorðið og í Username: CS\uglu notendanafnið þitt:Prentsky linux 2.jpg
  3. Veldu Ricoh í listanum og ýttu á "Forward":Prentsky linux 3.jpg
  4. Veldu MP C3004ex og Ricoh MP C3004ex PS og ýttu á "Forward":Prentsky linux 4.jpg
  5. Breyttu PostScript í Adobe PostScript:Prentsky linux 5.jpg
  6. Skrifaðu nafn að eigin vali í Location og ýttu á "Apply":Prentsky linux 6.jpg
  7. Þegar uppsetningu er lokið ættirðu að geta prentað út. Prentun er svarthvít og báðum megin á síðu sjálfgefið ef stillingum er ekki breytt.

Uppsetning - nýja prentský

Nýja prentskýið er staðsett á eftirfarandi stöðum:

Staðsetning
  • Lögberg 4. hæð.
  • Gimli 1, 2. hæð og hjá félagsvísindastofnun.
  • Oddi 1., 2., 3. hæð og doktorsrými.
  • Aragata 9.

Svona er það sett upp:

Windows
  1. Opnið UniFLOW síðuna og skráið ykkur inn.
  2. Leggið "PIN" á minnið. Það sést undir "Identities". Ef PIN sést ekki smellið þá á "New Identity" og bætið því við. uniflow windows 1.png
  3. Í tölvum á vegum háskólans er "Software Center" eða "Company Portal" opnað í gegnum start hnappinn og valið að setja upp UniFLOW. Ef forritið sést ekki í "Software Center" smellið þá á "Options" > "Computer Maintanance" og "Sync Now".
  4.  Aðrir sem eru ekki með tölvu á vegum skólans smella á "Start printing" á síðunni og ná í "Windows x64 "prentekill"".
  5. Keyrið prentrekillinn.
  6. Nú er prentskýið uppsett. Þið veljið "Prentsky HI" þegar þið prentið.
MacOS
  1. Opnið UniFLOW síðuna og skráið ykkur inn.
  2. Leggið "PIN" á minnið. Það sést undir "Identities". Ef PIN sést ekki smellið þá á "New Identity" og bætið því við.uniflow windows 1.png
  3. Undir "Start printing" skal ná í "Mac "prentekill"".
  4. Keyrið prentrekillinn.
  5. Smellið á "Continue":
    uniflow mac1.png
  6. Veljið "Install":
    uniflow mac2.png
  7. Samþykkið uppsetninguna með tölvu auðkennum:
    uniflow mac3.png
  8. Leyfið forritinu að leita að prenturum. Smellið á "Allow":
    uniflow mac4.png
  9. Smellið á "Close":
    uniflow mac5.png
  10. Skráið ykkur inn með HÍ netfangi og lykilorði:
    uniflow mac6.png
  11. Nú er prentskýið uppsett. Þið veljið "Prentsky HI" þegar þið prentið.uniflow mac7.png
Android/iOS
  1. Opnið UniFLOW síðuna og skráið ykkur inn.
  2. Leggið "PIN" á minnið. Það sést undir "Identities". Ef PIN sést ekki smellið þá á "New Identity" og bætið því við.uniflow windows 1.png
  3. Sækið "uniFLOW Online Print & Scan" í gegnum Google Play eða Apple App Store.
  4. Opnið UniFLOW síðuna aftur og smellið á símann í uppi í hægra horninu: Android 1.png
  5. Skrifið hér inn kóðan sem birtist í Uniflow appinu á snjalltækinu:Android 2.png
  6. Nú er prentskýið uppsett. Þið veljið "Prentsky HI" þegar þið prentið.
ChromeOS
  1. Opnið UniFLOW síðuna og skráið ykkur inn.
  2. Leggið "PIN" á minnið. Það sést undir "Identities". Ef PIN sést ekki smellið þá á "New Identity" og bætið því við.uniflow windows 1.png
  3. Sækið "UniFLOW Online" Chrome viðbótina.
  4. Opnið viðbótina og stimplið inn "https://hi.eu.uniflowonline.com/" undir URL:chrome uniflow 1.png
  5. Smellið á "Sign in" og "Háskóli Íslands" og klárið innskráningarferlið.
  6. Nú er prentskýið uppsett. Þið veljið "uniFLOW Online" þegar þið prentið.

Vandamál með Prentský

Hér er hægt að finna lausnir við algengum vandamálum sem snúa að prentskýinu og prenturum á vegum deilda:

Blek eða pappír er búin
  • Prentský prentarar láta Ofar vita sjáfkrafa ef blekið er búið, hinsvegar ef það gerist ekki þá er hægt að senda inn beiðni með þjónustunúmeri prentarans sem sést á hliðinni, staðsetningu hans (í hvaða byggingu og á hvaða hæð hann er) og hvaða lit vantar.
  • Deildir/svið sjá um innkaup á bleki fyrir sína prentara ásamt öllum pappír (nema í tölvuverum).
Vandamál með prentský prentara

Ef prentský hættir að virka fyrir einn notanda þá er yfirleitt best að eyða því úr tölvunni og setja það síðan aftur upp.

  • Windows: Smelltu á "Start" hnappinn og skrifaðu inn "Printers and scanners", smelltu á það, veldu síðan prentský og "Remove device".
  • MacOS: Opnaðu "System preferences", smelltu á Printers & scanners", veldu prentskýið og smelltu á mínus hnappinn.

Prentskýsprentarar eru útbúnir skynjurum sem láta Ofar vita sjálfkrafa ef eitthvað er að, hins vegar ef það gerist ekki þá er hægt að senda inn beiðni til Upplýsingatæknisviðs með þjónustunúmeri prentarans sem sést á hliðinni og staðsetningu hans (í hvaða byggingu og á hvaða hæð hann er).

Vandamál með aðra prentara
  • Algengasta orsök þess að það er ekki hægt að prenta er að tölvan er ekki tengd við HÍnet í gegnum Eduroam, hinet6 eða með vír (í Sturlugötu 8 er ekki hægt að prenta í gegnum Eduroam).
  • Ef prentarinn er með skjá þá er oft hægt að sjá hvað vandamálið er á skjánum.
  • Þú getur sent inn beiðni til Upplýsingatæknisviðs  ef þú þarft að fá aðstoð.

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
mán-fim 08:30-16:00
fös 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg