Greinar um þetta efni

Breyting á námsleið

Nemendur í grunnnámi geta sótt um breytingu á námsleið í sinni Uglu.

Hægt er að skoða yfirlit yfir allar námsleiðir í boði við háskólann á vefnum, en athugið að það getur verið misjafnt milli missera hvort tekið er við nýjum nemendum í námsleiðir.

Umsókn um breytingu á námsleið

Nemendur í framhaldsnámi sem hafa hug á að breyta námsleið þurfa að skila inn nýrri námsumsókn á almennum umsóknartíma framhaldsnáms í gegnum umsóknagátt. 

Breyting á kjörsviði / skrá aukagrein

Ef þú vilt breyta kjörsviði innan námsleiðar eða skrá aukagrein sendirðu tölvupóst á Nemendaskrá.

Rjáðgjöf við námsval

Hjá Nemendaráðgjöf (NHÍ) starfa náms- og starfsráðgjafar sem veita meðal annars upplýsingar um nám og ráðgjöf um námsval. Ef þig vantar aðstoð með námsval þá getur þú bókað viðtal við ráðgjafa á vefnum. Við mælum einnig með að skoða námsvalshjólið.

Hvað þarf ég að hafa í huga þegar ég sæki um breytingu á námsleið?

Þegar umsókn um breytingu á námsleið í grunnnámi er samþykkt er fyrri námsferli lokað og nýr námsferill kemur upp í Uglu nemanda. Umsókn um breytingu á námsleið er alla jafna ekki afgreidd fyrr en öll námskeið á fyrri ferli hafa fengið einkunn í Uglu eða nemandi skráð sig úr þeim.

Nemandi í framhaldsnámi sem sótt hefur um í nýtt framhaldsnám þarf að óska sérstaklega eftir því að fyrri ferli sé lokað ætli hann sér ekki að ljúka því námi.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg