Greinar um þetta efni

Samgöngusamningur og deilibílar

Háskólinn hvetur nemendur og starfsfólk til að nýta vistvæna samgöngumáta í ferðum til og frá háskólasvæðinu, hvort sem er reiðhjól, rafskútur, strætó eða tvo jafnfljóta.

Samgöngusamningur starfsfólks HÍ

Starfsfólk sem er í minnst 50% starfshlutfalli getur gert samgöngusamning. Samningurinn felur í sér skuldbindingu til að ferðast til og frá skólanum í strætó, hjólandi eða gangandi þrisvar í viku. Á móti fær starfsfólk niðurgreitt tólf mánaða strætókort eða frítt aðgangskort í íþróttahús HÍ við Sæmundargötu. Sjá frekari upplýsingar í Uglu.

Strætó á háskólasvæðinu

  • Strætisvagnar stoppa við flestar byggingar skólans.
  • Á Háskólatorgi er skjár sem sýnir staðsetningu vagna í rauntíma ásamt komum og brottförum á stoppistöðvum Háskólans við Suðurgötu og Hringbraut.

Á Þjónustuborðinu Háskólatorgi er hægt að kaupa klappkort og klapp tíur.

  • Klappkort er tómt snjallkort sem hægt er að fylla á inneign í gegnum vef Klappsins fyrir þá sem vilja frekar nota kort heldur en app í strætó.
  • Klapp tía er pappaspjald með tíu fargjöldum. Ekki er hægt að fylla á Klapp tíur og þær eru ekki með nemaafslætti.

Kynntu þér leiðakerfið og tímatöflur á vef strætó.

Hjólastandar og skýli

Hjólastandar eru við allar byggingar skólans auk þess sem finna má yfirbyggt hjólaskýli við Lögberg og VR II. Við Háskólatorg, VR II og í Stakkahlíð er enn fremur að finna viðgerðastanda ef eitthvað smálegt þarf að laga á hjólinu þínu.

Göngu- og hjólastígakerfi höfuðborgarsvæðisins

Samnýting ferða

Þeir sem hafa áhuga á að samnýta ferðir (carpooling) er bent á smáauglýsingar í Uglunni.

Á næstu misserium verður gjaldskylda bílastæða á háskólasvæðinu aukin.

Deilibílar og -hjól fyrir starfsfólk HÍ

Starfsfólki stendur til boða afnot af rafbifreiðum og -hjólum til að sinna vinnutengdum erindum á höfuðborgarsvæðinu. Bifreiðarnar eru staðsettar við Háskólatorg, Tæknigarð, Öskju, Læknagarð og Stakkahlíð og hjólin eru geymd í Aðalbyggingu og Stakkahlíð.

Bókanir fara fram í Uglu.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg