Kaffistofur fyrir starfsfólk eru í öllum byggingum skólans þar sem hægt er að fá sér kaffi, te og vatn.
Matarmiðar eða fæðisfé
Starfsfólk HÍ sem er í a.m.k. 50% starfi getur valið á milli þess að fá fæðisfé eða leyfi til að kaupa matarmiða sem hægt er að nýta í Hámu, í Bókakaffi stúdenta, Veröld - húsi Vigdísar og í Stúdentakjallaranum. Starfsmaður sem vill skrá sig á matarmiðalista hefur samband við launadeild og getur svo keypt matarmiðana á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.
Matsölustaðir
Háma er staðsett í níu byggingum á háskólasvæðinu, þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval af mat og drykk. Stærstu kaffistofur Hámu á Háskólatorgi, í Tæknigarði Læknagarði og Stakkahlíð bjóða upp á heitan rétt í hádeginu virka daga milli 11:30 - 13:30 og á öllum sölustöðum Hámu er hægt að fá súpu alla virka daga.
Við flesta sölustaði Hámu er aðstaða sem má nýta til að hita nesti og opin rými þar sem hægt er að tylla sér.
Til viðbótar við Hámu er að finna á háskólasvæðinu:
- Kaffistofur stúdenta í Haga og VR-II
- Súpustöðina í Veröld
- Veitingastaðinn Ými í Eddu
- Veitingastaðinn SÓNÓ
- Stúdentakjallarann
- Bókakaffi stúdenta.
Gott er að hafa í huga að margar af veitingasölunum á háskólasvæðinu eru opnar í samræmi við kennslutímabil.
Vegan
Félagsstofnun stúdenta rekur Hámu og Stúdentakjallarann þar sem boðið er upp á ýmsar veitingar fyrir grænkera. Í Hámu á Háskólatorgi og Tæknigarði eru tveir réttir dagsins í hádeginu og alltaf annar þeirra vegan. Að sama skapi er boðið uppá tvær tegundir af súpu, þar sem önnur er alltaf vegan. Veitingastaðurinn SÓNÓ í Norræna húsinu er einnig grænkeraveitingastaður.